LÖG FÉLAGS ÍSLENSKRA KÓRSTJÓRA.
1. gr. NAFN
Nafn félagsins er: Félag íslenskra kórstjóra (skammst. FÍK)
Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.
2. gr. TILGANGUR
Tilgangur félagsins er að:
· stuðla að samskiptum og samstarfi kórstjóra
· stuðla að símenntun og miðla upplýsingum þar að lútandi
· efla erlend samskipti
3. gr. FÉLAGAR
Félagsmenn geta orðið þeir sem
a) hafa lokið kórstjórnarnámi
b) hafa unnið við kórstjórn í a.m.k. tvö ár
Auka aðild, án atkvæðisréttar, geta þeir fengið sem
c) stunda kórstjórnarnám
d) þeir sem vinna við kórstjórn en uppfylla ekki skilyrði 3.gr b.
Umsóknir um aðild að félaginu skulu berast til stjórnar. Umsóknir eru bornar upp á aðalfundi og teljast samþykktar, greiði meirihluti fundarmanna atkvæði með þeim.
4. gr. AÐALFUNDUR
Aðalfundur fer með æðsta vald í félaginu.
Aðalfundur skal haldinn ár hvert í september.
Aðalfund skal boða í tölvupósti með 2ja vikna fyrirvara.
Í fundarboði skal koma fram dagskrá fundarins, megin tillögur sem leggja á fyrir fundinn og lagabreytingartillögur ef einhverjar eru.
Tillaga hlýtur samþykki ef meirihluti fundarmanna greiðir henni atkvæði sitt.
Atkvæðisbærir félagar eru þeir sem greitt hafa árgjöld sín.
Aðalfundur er lögmætur sé löglega til hans boðað.
Dagskrá aðalfundar:
· Fundarsetning og samþykkt síðustu fundargerðar aðalfundar.
· Skýrsla stjórnar.
· Endurskoðaðir reikningar lagðir fram.
· Kjör stjórnar og skoðunarmanna reikninga.
· Lagabreytingar.
· Ákvörðun árgjalds
· Inntaka nýrra félaga
· Önnur mál
5. gr. STJÓRN FÉLAGSINS
Í stjórn félagsins sitja 5 fulltrúar og 2 í varastjórn.
Formaður er kosinn sérstaklega. Stjórnin skiptir með sér verkum.
Kjörtími stjórnar er tvö ár. Þó skulu úr þeirri stjórn sem fyrst er kosin, ganga tveir eftir eitt ár, og þrír eftir tvö ár.
Varastjórn er kosin til eins árs í senn. Endurkosning stjórnar og varastjórnar er heimil. Stjórn skal halda a.m.k. tvo stjórnarfundi á ári.
6. gr. FJÁRHAGUR
Fjárhagsár félagsins er 1. apríl -31. mars. Fé félagsins skal ávaxtað í bankastofnun.
7. gr. FÉLAGSLÖG
Lögum félagsins má aðeins breyta á aðalfundi. Tillögur að lagabreytingum skulu sendar með aðalfundarboði. Lagabreytingar þurfa samþykki 2/3 greiddra atkvæða.
8. gr. FÉLAGSFUNDIR
Stjórnin skal kalla saman fund, ef minnst 5 félagsmenn æskja þess og tilgreina ástæðu.
Almennur félagsfundur telst lögmætur, hafi til hans verið boðað með tveggja daga fyrirvara.
9. gr. SLIT FÉLAGSINS
Félaginu verður ekki slitið nema 3/4 fulltrúa á aðalfundi greiði því atkvæði.
Á fundinum yrði tekin ákvörðun um ráðstöfun skulda og eigna félagsins.






