Frá ljósanna hásal

Langholtskirkja Sólheimar 13, Reykjavík

Fjórir kórar eldri borgara halda tónleika í Langsholtskirkju. Þetta eru EKKÓ kórinn, Kór félags eldri borgara í Reykjavík, Gaflarakórinn úr Hafnarfirði og Karlakórinn Kátir Karlar.Stjórnendur kóranna eru þau Bjartur Logi Guðnason, Kristín Jóhannesdóttir, Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir og Jón Kristinn Cortez. Undirleikari verður Jónas Þórir.Miðasala er við innganginn og miðaverð kr. 4.000.

kr.4000

Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar

Víðistaðakirkja Garðavegur 23, Hafnarfjörður

Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar verða í Víðistaðakirkju fimmtudaginn 5. desember og hefjast kl. 20:00. Kórinn er nú á sínu þrítugasta starfsári og hyggur á kórferðalag til Englands næsta vor. Undirbúningur fyrir þá ferð er þegar hafinn og á jólatónleikunum mun kórinn flytja íslenska tónlist í bland við sígild jólalög.Stjórnandi Kvennakórs Hafnarfjarðar er Sara Gríms en undirleikari […]

kr.4000

Aðventutónleikar

Langholtskirkja Sólheimar 13, Reykjavík

Árlegir aðventutónleikar Söngsveitarinnar Fílharmóníu verða haldnir í Langholtskirkju laugardaginn 7. desember kl. 17.00. Flutt verður fjölbreytt aðventu- og jólatónlist frá ýmsum tímum. Meðal annars verða frumflutt verkin Kveiki á einu kerti nú, eftir Þóru Marteinsdóttur og Allir litlir englar, eftir Tryggva M. Baldvinsson sem hann samdi sérstaklega fyrir Söngsveitina Fílharmóníu. Einsöngvari verður Íris Björk Gunnarsdóttir […]

Sanctus Ludus – Helgileikur að hætti Söngfjelagsins

Langholtskirkja Sólheimar 13, Reykjavík

Jólatónleikar Söngfjelagsins eru orðnir fastur liður á aðventunni. Í ár verður boðið upp á helgileik að hætti Söngfjelagsins þar sem jólasagan verður sögð í tali og tónum. Sérstakir gestir eru Pálmi Gunnarsson og Ragnheiður Gröndal, en undirleik annast hljómsveit Kjartans Valdimarssonar. Hver veit nema einn leynigestur líti líka við! Dagskráin er fjölbreytt en friður, gleði […]

Klukkur um Jól – Kór Öldutúnsskóla

Hafnarfjarðarkirkja Strandgata 49, Hafnarfjörður

Kór Öldutúnsskóla heldur sína árlegu jólatónleika 8. desember. Gestur kórsins að þessu sinni er Sigurður Guðmundsson söngvari. Píanóleikari er Agnar Már Magnússon.Þema tónleikana er tileinkað friði, mannkærleik og jólaanda. Miðaverð er 3000 krónur fyrir 11 ára og eldri. Við óskum eindregið eftir því að yngri börn sitji í fangi forráðamanna á tónleikunum. Tónleikarnir verða teknir upp […]

kr.3000

Aðventuhátíð Garðasóknar

Vídalínskirkja Kirkjulundur 3,, Garðabær

Kór Vídalínskirkju flytur fjölbreytta aðventu- og jólatónlist, meðal annars lög og texta eftir kórfélaga. Einsöngvarar koma úr röðum kórfélaga og með kórnum leika Friðrik Vignir Stefánsson á orgel, Peter Tompkins á óbó og Ásdís Arnarsdóttir á flautu. Stjórnandi er Jóhann Baldvinsson. Á hátíðinni flytur Ólafur Sæmundsson sóknarnefndarmaður hugleiðingu og Sigurvin Lárus Jónsson þjónar. Að lokinni […]

Jólatónleikar Kórs Breiðholtskirkju

Breiðholtskirkja Þangbakki 5, Reykjavík

Árlegir jólatónleikar Kórs Breiðholtskirkju verða haldnir í Breiðholtskirkju 8. desember kl 20:00.Enginn aðgangseyrir, bara koma og njóta

Aðventukvöld í Ísafjarðarkirkju

Ísafjarðarkirkja Sólgata, Ísafjörður

Kór Ísafjarðarkirkju syngur undir stjórn Judy Tobin. Einsöngvari er Svanhildur Garðarsdóttir. Frítt inn.

Jólakonfekt Spectrum

Seltjarnarneskirkja Kirkjubraut 170, Seltjarnarnes

Spectrum opnar jólakonfektkassann enn á ný og býður upp á girnilegt úrval af jólalögum. Að sjálfsögðu eru margir hátíðlegir klassískir molar sem allir þekkja, en líka margir nýir og spennandi með alls konar bragði úr rokki, poppi, djassi og meira að segja samísku jojki. Eitt er víst, það eru engir vondir molar! Sætin í Seltjarnarneskirkju […]

Aðventutónleikar Harmóníukórsins

Árbæjarkirkja Rofabær, Reykjavík

Þér er boðið á árlega aðventutónleika Harmóníukórsins 2024 í Árbæjarkirkju þriðjudaginn 10. desember klukkan 20. Fjölbreytt dagskrá og hressing að tónleikum loknum. Aðgangur ókeypis.

Jólastund með Söngspírunum

Grensáskirkja Háaleitisbraut 66, Reykjavík

Komdu og njóttu ljúfra tóna með Söngspírunum í Grensáskirkju miðvikudaginn 11. desember klukkan 20:00 Miðaverð er 3500kr Miðasala við inngang og hjá Söngspírum

Jólatónleikar Dómkórsins

Dómkirkjan Kirkjustræti 16, Reykjavík

Jólatónleikar Dómkórsins verða haldnir í Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 11. desember kl. 20:00.Kórinn flytur hið undursamlega A Ceremony of Carols op. 28 eftir Benjamin Britten, ásamt Elísabetu Waage hörpuleikara, en einnig verða á efnisskránni hefðbundin jólalög, gömul og ný, erlend sem innlend.Stjórnandi Dómkórsins er Guðmundur Sigurðsson dómorganisti. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega […]