Jólatónleikar Spectrum
LangholtskirkjaJólatónleikar Spectrum
Jólatónleikar Spectrum
Kvennakórinn Léttsveit Reykjavíkur syngur inn jólin ásamt hljómsveit. Gestur á tónleikum Björgvin Franz Gíslason.
Hinsegin kórinn býður ykkur að ferðast aftur í tímann, alt aftur til tíunda áratugs síðustu aldar, sem flestir þekkja sem næntís (90s) tímabilið. Hver man ekki eftir dásamlegum tískuslysum eins og þykkbotna skóm, buxum niður á rass, mínípilsum og flannel skyrtum? Kórinn mun flytja fjölbreytt lög frá þessum tíma, allt frá strákasveitum og glimmeri, yfir […]
Í byrjun aðventu býður Barbörukórinn upp á undurfagra kórtónlist. Flutt verða þekkt jólalög í bland við nýrri verk. Hlökkum til að eiga hátíðlega stund með ykkur! Stjórnandi er Kári Þormar. Miðaverð: 3.500 kr. 2.500 fyrir eldri borgara og öryrkja og frítt fyrir börn á grunnskólaaldri.
Aðventutónleikar Kvennakórs Reykjavíkur verða haldnir í Langholtskirkju laugardaginn 30. nóvember kl. 16.00. Á dagskrá verða falleg jólalög, innlend og erlend og einnig klassískar perlur á borð við Ave Maria eftir Caccini. Söngurinn mun njóta sín vel í einstökum hljómburði Langholtskirkju. Kvennakór Reykjavíkur var stofnaður árið 1993 og hefur haldið fjölda tónleika og tekið þátt í […]
BACH Á AÐVENTUNNI / BACH ADVENT CONCERTFyrsti sunnudagur í aðventu 1. desember kl. 17, 2024. Flutt verða verk eftir J.S. Bach; einsöngskantata, einleikskonsert á sembal og kantata fyrir kór, hljómsveit og einsöngvara. Leikið er á upprunahljóðfæri í barokkstillingu. Hallgrímskirkja hefur um árabil verið leiðandi í flutningi barokktónlistar á upprunahljóðfæri á Íslandi. Flytjendur:Barokkbandið BrákAlfia Bakieva, konsertmeistariKór […]
Mótettukórinn býður til notalegrar aðventu- og jólastundar í Laugarneskirkju 2. og 3. desember kl. 20.00. Kórinn flytur sígildar perlur sem áheyrendur þekkja og elska, ásamt nýju efni undir stjórn Stefans Sand. Jólatónleikar Mótettukórsins eru fyrir löngu orðin ómissandi hefð á aðventunni í Reykjavík og nú ætlar kórinn að kalla fram hinn sanna jólaanda á nýjum […]
Mótettukórinn býður til notalegrar aðventu- og jólastundar í Laugarneskirkju 2. og 3. desember kl. 20.00. Kórinn flytur sígildar perlur sem áheyrendur þekkja og elska, ásamt nýju efni undir stjórn Stefans Sand. Jólatónleikar Mótettukórsins eru fyrir löngu orðin ómissandi hefð á aðventunni í Reykjavík og nú ætlar kórinn að kalla fram hinn sanna jólaanda á nýjum […]
Hinsegin kórinn og Spectrum syngja inn jólin. Jólin eru yndislegasti tími ársins og nú bjóðum við ykkur upp á kórajól, þar sem Hinsegin kórinn og Spectrum koma saman. Við fögnum öllum hliðum jólanna, hvort sem það er snjókallastuð, kertaljós og knús, tregablendin fegurð eða jafnvel hinn ógnvænlegi yfirdráttur. Þessir skemmtilegu tónleikar verða haldnir í Guðríðarkirkju […]
Garðakórinn, kór eldri borgara í Garðabæ, stjórnandi Jóhann Baldvinsson, og Vorboðar, kór eldri borgara í Mosfellsbæ, stjórnandi Friðrik Vignir Stefánsson halda sameiginlega tónleika í Vídalínskirkju í Garðabæ fimmtudaginn 5. desember kl. 17:00. Á efnisskránni er fjölbreytt úrval aðventu- og jólalaga.Hvor kór syngur nokkur lög og síðan syngja kórarnir saman í lokin. Enginn aðgangseyrir er að tónleikum.
Samkór Reykjavíkur heldur árlega jólatónleika þann 5.desember kl.19:30 í Digraneskirkju, Kópavogi.Gömul jafnt sem ný jólalög í ljúfum flutningi. Boðið verður upp á kaffi og smákökur að tónleikum loknum. Miðaverð 3500 kr. og frítt inn fyrir 16 ára og yngri. Hlökkum til að sjá ykkur
Fjórir kórar eldri borgara halda tónleika í Langsholtskirkju. Þetta eru EKKÓ kórinn, Kór félags eldri borgara í Reykjavík, Gaflarakórinn úr Hafnarfirði og Karlakórinn Kátir Karlar.Stjórnendur kóranna eru þau Bjartur Logi Guðnason, Kristín Jóhannesdóttir, Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir og Jón Kristinn Cortez. Undirleikari verður Jónas Þórir.Miðasala er við innganginn og miðaverð kr. 4.000.